Rannsókn á afleiðingum atvinnuleysis

54. fundur
Mánudaginn 16. nóvember 1992, kl. 14:53:32 (2281)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég verð eiginlega að þakka fyrir þetta andsvar en samkvæmt eðli andsvara þá hefði ég eiginlega átt að standa upp og verja ríkisstjórnina, en mér er alveg ómögulegt að gera það. Ég get tekið undir mikið af því sem hv. þm. sagði.