Friðun Landnáms Ingólfs fyrir lausagöngu búfjár

54. fundur
Mánudaginn 16. nóvember 1992, kl. 15:51:18 (2291)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. formanni landbn. fyrir jákvæð orð í garð þessarar tillögu, um hugsanlega afgreiðslu hennar og meðferð í nefndinni. Við höfum flutt þessa tillögu áður, bæði ég og hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir og fleiri þingmenn. Sömuleiðis hafa hliðstæð mál verið flutt hér fyrr af hv. þm. Geir Gunnarssyni fyrir allmörgum árum, mjög skyld mál. Ég tel því að það sé mjög mikilvægt að sátt geti náðst um þetta mikilvæga mál í hv. landbn. og ég endurtek þær þakkir sem ég flutti áðan til hv. formanns landbn.