Aðgerðir gegn peningaþvætti

55. fundur
Þriðjudaginn 17. nóvember 1992, kl. 16:50:26 (2334)

     Jón Helgason :
    Hæstv. forseti. Ég bið hæstv. viðskrh. afsökunar á því ef ég hef misskilið orð hans. Hins vegar held

ég að við séum öll sammála um það hvert svo sem viðhorf okkar til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið er að hann eykur mjög mikið alþjóðaviðskipti okkar og samskipti og því hlýtur hann að vera stórt skref í að auka þá hættu sem hæstv. ráðherra varaði við.