Páll Pétursson
:
Frú forseti. Ég verð að leyfa mér að draga það í efa, að óreyndu máli a.m.k., að þingmeirihluti sé fyrir þessu máli ríkisstjórnarinnar að gerast aðili að þessu bandalagi. Það eru engin hernaðarleg rök fyrir því að tengja Íslendinga hernaðararmi Evrópubandalagsins. Það eru engin siðleg rök fyrir því að gera það. Við erum vopnlaus þjóð og friðsöm með alveg örfáum undantekningum. Það eru engin fjárhagsleg rök fyrir því. Við munum bera af þessu töluverðan kostnað. Það er þakklætisvert að hæstv. utanrrh. leiðrétti sig áðan og upplýsti að Íslendingar ættu ekki að borga allan kostnaðinn af bandalaginu og það má náttúrlega þakka honum fyrir þá fyrirhyggju. Það eru engin vitræn rök fyrir þessari ákvörðun ríkisstjórnarinnar og þó, einu rökin fyrir þessari ákvörðun eru þau að ríkisstjórnin er að taka enn eitt skrefið inn í Evrópubandalagið með því að gerast aukaaðili að hernaðararmi þess. Það er þarna sem hundurinn liggur grafinn. Þetta er skref inn í Evrópubandalagið sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að stíga og ég leyfi mér að efast um að það sé þingmeirihluti fyrir því að taka þetta skref.