Aðild Íslands að Vestur-Evrópusambandinu

58. fundur
Fimmtudaginn 19. nóvember 1992, kl. 16:48:22 (2501)


     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. þessa yfirlýsingu. Ég tel það rétt skref að hann beiti sér fyrir því að undirritunin fari fram með fyrirvara og að málið verði tekið til umræðu með þinglegum hætti svo fljótt sem verða má. Þessu fylgir að sjálfsögðu að málið verður rætt ítarlega í utanrmn. Það var enginn ágreiningur um það eða neinn óvilji hjá formanni nefndarinnar. Ég vil að það komi fram að þetta verði gert.