Aðild Íslands að Vestur-Evrópusambandinu

58. fundur
Fimmtudaginn 19. nóvember 1992, kl. 16:54:37 (2505)

     Jón Helgason :
    Hæstv. forseti. Ég þakka að sjálfsögðu fyrir þá ákvörðun sem tekin hefur verið svo langt sem hún nær. Meðferð málsins mun þannig verða með þinglegum hætti þó að ég hins vegar hljóti að láta í ljós vonbrigði mín yfir því að undirrita eigi aðild okkar, þó með fyrirvara sé, að hernaðarlegum hluta Evrópubandalagsins.