Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson)
(andsvar)
:
Frú forseti. Það er rétt að minna hv. þm. á það að skattur á vexti og fjármagnstekjur vinnur gegn því markmiði sem ég hygg að við séum sammála um að er eitt af brýnustu verkefnunum, þ.e. að lækka raunvextina. Það hafa verið sköpuð skilyrði með ákvörðunum ríkisstjórnarinnar til þess að lækka vexti og ég tel að það þurfi að fylgja því eftir. Hv. 7. þm. Reykn. talaði um nauðsyn handleiðslu eða um handafl í því efni í gær. Hann situr í bankaráði stærsta viðskiptabanka landsins. Ríkisstjórnin hefur ekki meiri hluta í því bankaráði. Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa meiri hluta í því bankaráði. Ég óska eftir því að hv. þm. upplýsi vegna þessara ummæla hvort hann hefur flutt tillögu þar sem stjórnarandstaðan hefur meiri hluta um handaflslækkun á vöxtum og hvernig þeirri tillögu hefur verið mætt af hálfu stjórnarandstöðuflokkanna ef hún hefur þá verið flutt. ( StH: Það hef ég gert.)