Tilkynning frá ríkisstjórninni

60. fundur
Miðvikudaginn 25. nóvember 1992, kl. 00:25:41 (2634)

     Jón Helgason (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég er sammála hæstv. forsrh. að fólk vildi að þessar ráðstafanir bæru árangur. En ég á dálítið erfitt með að skilja hæstv. forsrh. að ekki skuli vera óhætt að taka mark á málflutningi þeirra fulltrúa sem nú sitja á Alþýðusambandsþingi og eru umbjóðendur, mig minnir 70 þúsund Íslendinga og þeim anda sem virtist ríkja á þeirri fjölmennu samkomu.