Frsm. utanrmn. (Björn Bjarnason) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 336 frá utanrmn. um till. til þál. um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Tékkneska og slóvakíska sambandslýðveldisins. Álitið er stutt, svohljóðandi:
    ,,Nefndin hefur fjallað um tillöguna og leggur til að hún verði samþykkt.``
    Undir þetta rita Björn Bjarnason, Rannveig Guðmundsdóttir, Steingrímur Hermannsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Geir H. Haarde, Páll Pétursson, Árni R. Árnason og Tómas Ingi Olrich.