Svavar Gestsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Vissulega fagna ég því ef þetta er svona að unnt sé að breyta reglum þannig að það spari 100 millj. kr. Mér finnst það satt að segja með ólíkindum og það er auðvitað nauðsynlegt að upplýsa það, ekki aðeins hér í þessari umræðu heldur með skriflegum hætti við fyrsta tækifæri hvaða mismunun og misnotkun er það sem hæstv. heilbr.- og trmrh. er að tala um að því er varðar Atvinnuleysistryggingasjóð. Eru menn að henda þar út um gluggann 100 millj. á ári sem hægt er að skera út án þess að það komi niður á atvinnulausum, án þess að það þýði breytingu á bótareglum og án þess að það þýði verri framkvæmd á þessu máli að því er varðar hið atvinnulausa fólk? Ég undrast það satt að segja ef þetta er svo og það er mjög alvarleg ásökun á hendur því fólki sem hefur stjórnað Atvinnuleysistryggingasjóði á undanförnum árum og sömuleiðis þeim sem hafa með úthlutun atvinnuleysisfjármuna að gera. Það verður auðvitað í tilefni af orðum hæstv. heilbr.- og trmrh. að koma í veg fyrir það að menn haldi áfram að kasta út um gluggann til einskis 100 millj. kr. á ári. Það gengur auðvitað ekki.