Stjórnarskipunarlög

66. fundur
Fimmtudaginn 26. nóvember 1992, kl. 19:08:15 (2794)

     Hjörleifur Guttormsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég átta mig ekki á því með hvaða hætti menn ætla að standa hér að þingstörfum. Það er aldeilis óvenjulegt að fara að keyra áfram þingfund á kvöldmatartíma. Mér kom ekki til hugar að svo væri og ég beini því eindregið til forseta að gert verði eðlilegt og venjulegt hlé á þingfundi.