Viðurkenning á menntun og prófskírteinum

68. fundur
Miðvikudaginn 02. desember 1992, kl. 13:49:12 (2856)

     Frsm. meiri hluta menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Þegar menntmn. afgreiddi það frv. frá sér sem hér er til umfjöllunar til 2. umr. fórst fyrir að gera tillögu um breytingu á 2. gr. í samræmi við brtt. nefndarinnar við 1. gr. Því geri ég það að tillögu minni að í stað orðsins ,,jafnsetta`` í 2. gr. komi ,,jafngilda``. Með þessari brtt. er tryggt að samræmi sé í orðalagi 1. og 2. gr. um það atriði sem um er að ræða.