Viðurkenning á menntun og prófskírteinum

68. fundur
Miðvikudaginn 02. desember 1992, kl. 14:54:48 (2871)

     Frsm. meiri hluta menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil ítreka að það er ekki gert ráð fyrir því að verið sé að breyta frá því sem nú er við umfjöllun og afgreiðslu umsókna um leyfi til þess að leggja stund á tiltekin störf. Það er þegar gert í samráði við hin ýmsu fagfélög. Það var það sem ég átti vð þegar ég var að vísa til aðila vinnumarkaðarins.