Samkeppnislög

69. fundur
Fimmtudaginn 03. desember 1992, kl. 14:56:11 (2950)


     Vilhjálmur Egilsson (um atkvæðagreiðslu) :
    Hæstv. forseti. Ég vil biðja hv. þm. að telja sig ekki vera hæstarétt yfir okkur hinum í því hvort við teljum að verið sé að brjóta stjórnarskrána eða ekki. Ég vil bara segja fyrir mig að ég tel að með því að samþykkja þessa tillögu sé ég ekki að því og ég vil vekja athygli hv. þm. á því að af 63 þingmönnum eru ekki nema 15 sem eru sammála honum um þetta mál.