Samningar við EB um fiskveiðimál

69. fundur
Fimmtudaginn 03. desember 1992, kl. 18:01:37 (2973)

     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Frú forseti. Það hefur aldrei verið dregin dul á það að samkomulagið um gagnkvæm skipti á veiðiheimildum er í tengslum við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Það á ekki að vera nýmæli fyrir nokkrum hv. þm. Ég tel að hvort tveggja sé viðunandi fyrir okkur, þessir samningar sem hér liggja fyrir innbyrðis og samningarnir um Evrópska efnahagssvæðið og þessir samningar í heild.