Samningar við EB um fiskveiðimál

69. fundur
Fimmtudaginn 03. desember 1992, kl. 18:07:01 (2977)

     Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil bara að þá fáist skýrt hvort sá skilningur minn sé réttur að hæstv. sjútvrh. treysti sér ekki til að útskýra hvers vegna mun ítarlegri útfærsla er á endurskoðunarþætti varðandi gagnkvæmni veiða í fréttatilkynningu en því plaggi sem við erum að fjalla um og eigum að samþykkja.
    Ég geri ráð fyrir að með því að svara þessu ekki sé hann að vísa á hinn fjölfróða utanrrh. sem í krafti reynslu sinnar af utanríkissamningum ætti að geta svarað þessu. Satt að segja hafði ég vonað að hæstv. sjútvrh. þekkti þetta mál, skildi og gæti skýrt það.