Afgreiðsla mála fyrir jólahlé

70. fundur
Föstudaginn 04. desember 1992, kl. 11:14:41 (3052)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti mun beita sér fyrir því að ekki síðar en á morgun verði tekin ákvörðun um það eða að það liggi fyrir hvort nauðsynlegt reynist að fresta 2. umr. um fjárlög sem átti að fara fram á þriðjudag.

    Þá óskar forseti eftir því að víkja aðeins út af dagskrá þannig að nú verði tekin fyrir 2. og 3. dagskrármál. En að afgreiðslu þeirra mála lokinni verði 1. dagskrármál tekið fyrir að nýju.