Samgönguráðherra (Halldór Blöndal)
(andsvar)
:
Herra forseti. Vegna þess að hv. 1. þm. Vestf. hefur dregist inn í þessar umræður er nauðsynlegt að það komi fram að þegar hann flutti á sínum tíma till. til þál. um Gilsfjarðarbrú hefði að sjálfsögðu verið mögulegt að hraða öllum tæknilegum undirbúningi svo að þau markmið sem hann setti sér í tillögugreininni hefðu getað staðist.
Á hinn bóginn má auðvitað gagnrýna mig fyrir að hafa ekki fylgt undirbúningi þess verks eftir með fullum krafti. Það er ekki við neinn um það að sakast nema mig að ég gerði það ekki en eins og sakir standa nú er ekki tæknilega unnt að bjóða verkið út á næsta ári svo að vel sé, en Gilsfjarðarbrú er á sínum stað í vegáætlun. Það hefur ekkert verið hróflað við henni og samkvæmt vegáætlun er gert ráð fyrir því að meginþunginn af því verki komi á næsta áætlunartímabili. Þetta mál liggur alveg ljóst fyrir og er raunar óþarfi að tala meira um það. Gilsfjarðarbrúin er á sínum stað. Með því að hægt verði að hraða brú yfir Kúðafljót skapast einungis meira svigrúm til stórverkefna á næstu árum á eftir og þar er brúin yfir Gilsfjörð efst á blaði.