Virðulegi forseti. Það er út af ummælum hv. 2. þm. Vesturl. varðandi það samkomulag sem gengið var frá á milli formanna þingflokka í síðustu viku. Þá er það rétt að það komi fram að á fyrri fundi sem við áttum kom fram fyrirvari af allra hálfu, þ.e. þriggja stjórnarandstöðuflokka varðandi úrslit atkvæðagreiðslunnar í Sviss. Á síðari fundi, sem haldinn var og sem hæstv. utanrrh. var viðstaddur, var hann hins vegar aðeins ítrekaður af Alþb. og það mun vera ástæðan fyrir því að í fundargerð er eingöngu vikið að Alþb. í þessu sambandi. En mér er ljúft að viðurkenna að ég kannast við það að aðrir flokkar gerðu við
þetta fyrirvara.
Hins vegar er það ekki rétt sem hv. þm. sagði að þar með lægi fyrir og hefði komið fram að málið kæmi ekki til umræðu fyrir jól og það kæmi ekki til greina að ræða það eða afgreiða neitt fyrir jól. Það liggur hins vegar þá bara fyrir og það er ekki samkomulag um hvernig að því skuli staðið. Það þýðir vitaskuld ekki annað en það að setjast þarf niður á nýjan leik og ræða málið að nýju eins og ég hef þegar sagt í umræðunni, meta hinar nýju aðstæður og reyna að komast að nýju skynsamlegu samkomulagi eins og menn gerðu í síðustu viku. Það held ég að allir hafi fullan hug á að gera. Mér heyrðist það bæði í umræðunum í utanrmn. í morgun og sömuleiðis í hádeginu á fundi þingflokksformanna hjá forseta og ég er sannfærður um ef allir leggjast á eitt þá náum við slíku samkomulagi. En það gerist ekkert í málinu fyrr en hæstv. utanrrh. kemur af fundi sínum. Ég held við eigum að láta þetta mál kyrrt liggja þangað til.