Skattamál

73. fundur
Þriðjudaginn 08. desember 1992, kl. 19:43:03 (3152)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svarið og staðfestingu á því sem hér hefur flogið fyrir að meira að segja þessar skrautfjaðrir hæstv. núv. ríkisstjórnar séu í stórhættu og verði e.t.v. reyttar af milli umræðna í fjárlögunum. Ég tala nú ekki um það sem maður heyrir í viðræðum við menn að þessu sé óspart beitt í þvingunaraðgerðum til þess að reyna að pína fram einhverja niðurstöðu fram í fjármálunum.