Afgreiðsla fjárlagafrumvarps

74. fundur
Miðvikudaginn 09. desember 1992, kl. 13:54:29 (3184)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti vill ítreka að í þeirri starfsáætlun sem dreift var þá var gert ráð fyrir að fundir gæti orðið á milli kl. 6 og 7 á miðvikudögum. Jafnframt kom þar fram að búast mætti við þingfundum á þriðjudagskvöldum, slíkt yrði þó alltaf ákveðið í samráði við formenn þingflokka.