Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 430 frá minni hluta efh.- og viðskn. Það er svohljóðandi, með leyfi forseta:
,,Nefndin hefur haft til umfjöllunar tillögu til breytinga á lánsfjárlögum fyrir árið 1992. Breytingin, sem lögð er til, er tilkomin vegna þess að útgefnir húsbréfaflokkar eru á þrotum og vantar á markað húsbréf sem nema 1 milljarði kr. á þessu ári.
Að sögn formanns stjórnar Húsnæðisstofnunar er talið óhagkvæmt að gefa út húsbréfaflokka sem
nema lægri upphæð en 4 milljörðum kr. og er því meiningin að 3 milljarðar kr. verði fluttir yfir á næsta ár en 1 milljarður króna nýtist á þessu ári.
Undirritaðir nefndarmenn eru samþykkir því að þörf er fyrir þennan húsbréfaflokk en telja rétt að ríkisstjórnarflokkarnir beri ábyrgð á þessum hluta lánsfjárlaganna fyrir árið 1992 eins og lögunum í heild og munu því sitja hjá við afgreiðslu málsins.``
Undir þetta nál. skrifa Jóhannes Geir Sigurgeirsson og Kristín Ástgeirsdóttir.