Almannatryggingar

76. fundur
Fimmtudaginn 10. desember 1992, kl. 00:36:32 (3235)

     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Ég ítreka að samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum er fjöldi þessara barna samtals 8.298 og heildaráhrifin af þeim breytingum sem hér eru gerðar fyrir utan biðtímastyttinguna 486 millj. kr. brúttó. Það er sjálfsagt afhenda hv. þm. þessar upplýsingar. Þetta eru þær upplýsingar sem við höfum unnið okkar tillögur eftir. Séu þær rangar, þá verður auðvitað að skoða málið upp á nýtt.