Fjárlög 1993

78. fundur
Fimmtudaginn 10. desember 1992, kl. 22:54:16 (3297)

     Stefán Guðmundsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Hv. þm. lét þau orð falla að fyrir 3. umr. vonaðist hann til að þrifalegra yrði orðið í kringum þennan búvörusamning en nú væri. Ég vil biðja hv. þm. að koma hér upp og tjá okkur í hverju þessi óþrifnaður ríkisstjórnarinnar liggur gagnvart bændum og búvörusamningi.