Össur Skarphéðinsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég get ekki annað en tekið undir þau umvöndunarorð sem hv. þm. Steingrímur Jóhann Sigfússon hefur um það með hvaða hætti þessi umræða fer fram. Það er alveg hárrétt að þingmenn sýna henni sorglega lítinn áhuga. Ég verð auðvitað að lýsa depurð minni yfir því að hér eru ekki staddir nema tveir þingmenn stjórnarandstöðunnar. Stjórnarandstaðan hefur geisað mjög í fjölmiðlum sem og í þingsölum yfir því hversu mikil mannvonska felst í þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir og í því fjárlagafrv. sem hún hefur hér mælt fyrir. En það er ákveðin þverstæða fólgin annars vegar í þessum ummælum og hins vegar því að það sækir varla nokkur einasti þingmaður stjórnarandstöðunnar þessar umræður. Það veldur mér líka, hv. þm. Steingrímur Jóhann Sigfússon, nokkrum áhyggjum vegna þess að ég tel að í virku lýðræði felist einmitt það að stjórnarandstaðan veiti aðhald. Það liggur við að ég leyfi mér að segja, virðulegi forseti, að það sé allt loft úr stjórnarandstöðunni.
Þingmaðurinn fór vítt um svið eins og hans er von og vísa. Ég vil lýsa því yfir, virðulegi forseti, að ég og minn flokkur höfum gjarnan umgengist þennan hv. þm. af nokkrum virðuleika. Ég vil minna á að þegar minn ágæti formaður, hæstv. ráðherra Jón Baldvin Hannibalsson, gaf sínum fyrri kollegum einkunnir var einkunn hans um Steingrím Jóhann sú að hann væri næsta frambærilegur þingmaður. Ég tek undir það og þess vegna vakti það sorg mína hversu vanstillt ræða þingmannsins var.
Hann fór víða og ræddi m.a. búvörusamninginn og meint svik ríkisstjórnarinnar á honum. Hann taldi m.a. til umsögn Ríkisendurskoðunar. Ég verð að segja það að ég gef afskaplega lítið fyrir umsögn Ríkisendurskoðunar og er hissa á því að hv. þm. sem hefur ekki fremur en hans flokkur lokið miklu lofsorði á þá stofnun skuli notfæra sér þau gögn. Mig langar að taka eitt lítið dæmi. Stofnunin bendir t.d. á að það vanti einar 13--14 millj. kr. í framlög til sláturhúsa vegna vaxta- og geymslukostnaðar. Þegar ég las þetta sem varaformaður landbn. fór ég að reyna að grafast fyrir um það með hvaða hætti hún komst að þessu. Ég komst að þeirri niðurstöðu að hún hefði ekki farið í ýkja djúpar rannsóknir heldur einungis skrifað Framleiðsluráði landbúnaðarins bréf sem sendi þetta svar. Þetta tel ég afskaplega vond vinnubrögð.
Að lokum, virðulegi forseti, af því að svo vill til að ég hef örlitla menntun í kynlífi fiska gleður það mig að hér kemur þingmaðurinn og lýsir því yfir að hann vill verja 10 millj. í að rannsaka hrygningu þorskfiska. Af því að ég er áhugamaður um æxlunartækni þessara fiska vil ég spyrja þingmanninn, til þess að mér gefist mögulega færi á að styðja tillögurnar: Með hvaða hætti hyggst hann verja þessum 10 millj. og í hvers konar rannsóknir á æxlunaratferli þorskfiska?