Fjárlög 1993

79. fundur
Föstudaginn 11. desember 1992, kl. 12:14:20 (3361)

     Einar K. Guðfinnsson :
    Virðulegi forseti. Varðandi þennan fjárlagalið er rétt að vekja á því athygli að það gegnir sama máli með hann og með aðra þá liði er varða yfirstjórnir ráðuneytanna. Þó að fjárln. sé að leggja til hækkanir á þessum liðum, þá er hér eingöngu um að ræða tilfærslu þannig að í raun og veru er ekki um að ræða neina heildarhækkun. Þetta er þess vegna mjög eðlilegt fyrirkomulag og ég segi því já.