Geir H. Haarde
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Hv. síðasti ræðumaður var svo vinsamlegur að víkja að mér orði í ræðu sinni og beindi til mín þeirri spurningu hvort það væri í samræmi við mín sjónarmið í þessum málum að allar lánveitingar skyldu koma inn á borð hæstv. félmrh. en það sagði ræðumaður að væri efni þessa frv. ásamt öðru. Það er best að segja það strax að þetta er misskilningur. Það er ekki gert ráð fyrir þessu heldur þvert á móti er gert ráð fyrir því í 8. gr. frv. að undirbúningur og afgreiðsla lána hverfi í sem ríkustum mæli inn í bankastofnanir og fjármálastofnanir, viðskiptastofnanir þeirra sem eru að taka lán. Þetta er þveröfugt við það sem hv. þm. hélt fram og nauðsynlegt að koma þeirri skýringu á framfæri. Hugmyndin er þvert á móti sú að koma þessum afgreiðslum inn í heimabyggðir og viðskiptastofnanir viðskiptamanna Húsnæðisstofnunar um land allt.