Anna Ólafsdóttir Björnsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Þar sem ég átti aðild að því samkomulagi sem gert var í vor og ég heyrði ekki betur en að hv. 8. þm. Reykv. væri að láta að því liggja að það hefði verið brotið þá tel ég að svo sé ekki. Ég tel að hv. 1. þm. Norðurl. v. hafi gert grein fyrir þeim töfum sem hafa orðið og jafnframt því orðalagi að stefnt væri að því að ljúka umræðu í nóvember um EES-málið. Ég vil benda á það að við gerðum mikið til þess að greiða fyrir þessu máli. Mér finnst ekki sæmandi að væna okkur um annað. Við vorum reiðubúin til að mæta á nefndarfundi í sumar. Það stóð ekki á okkur heldur stóð á stjórnarliðum að vera tilbúnir með frumvörpin og það stóð á ráðuneytum. Ég ætla ekki að leggja dóm á það hvort þetta hafi verið óraunsætt samkomulag af hálfu stjórnarliða í vor og tímans vegna hafi hreinlega ekki verið hægt að gera það. En ég vil ekki sitja undir því að við höfum ekki gert mikið til að greiða fyrir þessu máli. Með því að vera alltaf reiðubúin að mæta á nefndarfundi í sumar, með því að mæta snemma til þings, með því að leggja á okkur mikla vinnu höfum við gert það sem í okkar valdi stóð. Ég vil einnig að það komi fram að þó að vegna þingskapa annarra þjóðþinga hafi umræðan þar verið með öðrum hætti á það ekki að hafa áhrif á okkur. Það eru margir mjög ósáttir á þjóðþingum, t.d. í Noregi, yfir hve ólýðræðislega var staðið þar að málum og þurfti þó aukinn meiri hluta.
Einnig er það svo að við höfum ekki átt, þrátt fyrir mikla kröfu frá samfélaginu, kost á því að sinna þessu máli sem skyldi vegna þess að okkur hefur verið meinað að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu. Við erum eina þingið, ef ég man rétt, sem þarf hvorki þjóðaratkvæðagreiðslu né aukinn meiri hluta. Hér er ólýðræðislega að verki staðið.