Evrópskt efnahagssvæði

82. fundur
Mánudaginn 14. desember 1992, kl. 14:55:16 (3470)

     Jóhann Ársælsson (um þingsköp) :
    Virðulegur forseti. Mér þykir hv. 8. þm. Reykv. að vísu hafa talað skýrt um þetta samkomulag frá því í vor en hann hefur greinilega komið sér undan því að svara hvort það samkomulag, sem hann sagði áðan að hefði verið reynt að gera um að hefja umræðuna 12. des., hafi verið brotið. Það situr eftir að hann hefur ekki svarað því skýrt. Mér finnst að stjórnarandstaðan eigi rétt á því að ekki séu látnar hanga í loftinu óljósar hugmyndir um að hún hafi brotið samkomulag í þessu efni sem hún ekki gerði. Mér finnst að það ætti að vera það minnsta að menn gætu komið og sagt satt um það að hér hefur ekkert samkomulag verið brotið af hálfu stjórnarandstöðunnar um þessi mál.