Ummæli utanríkisráðherra um Alþingi

82. fundur
Mánudaginn 14. desember 1992, kl. 21:14:50 (3490)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Hv. alþingismönnum er það kunnugt að hæstv. utanrrh. getur komið inn í mælendaskrá þess máls sem er á dagskrá þegar honum þóknast vegna þess að hann hefur þar forræði. ( Utanrrh.: Ég mun gera það ef málið kemst á dagskrá.) Auk þess er eðlilegt að taka það fram að þingsköp Alþingis ná einvörðungu að sjálfsögðu yfir það sem gerist á Alþingi Íslendinga en ekki það sem þar er fyrir utan.