Evrópskt efnahagssvæði

83. fundur
Þriðjudaginn 15. desember 1992, kl. 23:16:52 (3589)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er auðvitað hópur þingmanna sem ekkert hefur talað í þessu EES-máli enn þá, þ.e. þingmenn sem eiga rétt á því að tala og þingmenn sem er skylt að tala gagnvart sínum kjósendum. Varðandi undirritaðan vil ég mótmæla þessu sérstaklega. Í þessu máli frá því að það kom fyrir á Alþingi hef ég einu sinni kvatt mér hljóðs þannig að ég vísa því á bug að ég hafi tekið hér óeðlilega mikinn tíma. Það mættu fleiri skoða sinn málflutning í þeim efnum og hversu hann hefur greitt fyrir meðferð málsins á Alþingi eins og hæstv. utanrrh.