Kristín Ástgeirsdóttir
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Það er vissulega rétt sem kemur fram hjá ræðumanni að auðvitað er þetta vandamál sem við stöndum frammi fyrir. En ég hlýt að benda á það hér að mönnum verður mjög starsýnt á þennan hóp, ungt fólk sem vill kaupa sér húsnæði í fyrsta sinn, en ég vil benda á það t.d. ef við erum að hugsa um stefnu ríkisstjórnarinnar að hún hefur haft fyrirheit um húsaleigubætur og ýmislegt fleira. Það er verið að mismuna fólki í húsnæðismálum. Og það eru fleiri hópar heldur en ungt fólk sem vill kaupa sér húsnæði í fyrsta sinn sem stendur frammi fyrir vandamálum. Það er hér misrétti í húsnæðismálum. Það er ósköp einfalt mál og þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir og þrýsting hefur ekkert gerst í málefnum leigjenda. Ég held að aukinn stuðningur við leigjendur og meira framboð á leiguhúsnæði mundi létta þrýstingnum nokkuð af húsnæðismarkaðnum og lækka íbúðaverð, sem er óeðlilega hátt að mínum dómi. En það er auðvitað rétt og ég tek undir það að auðvitað þarf að huga að þessu máli ekki síst í ljósi þeirrar launaþróunar sem verið hefur. Ég vil miklu frekar beina sjónum að launamálum og því hvernig launum er haldið niðri í landinu sem er að skapa ákveðið misgengi í þessum málum. Það er að verða til nýtt misgengi vegna þess hve laun eru hrikalega lág hjá öllum þorra launafólks.