Virðulegur forseti. Það er óvenjulegt að ríkisstjórnin skuli koma fram með skoðanir á Alþingi um þessar mundir um þessi erfiðu mál. Ég vil eindregið leggja það til, hæstv. forseti, að það fari fram sérstök umræða um þau utan dagskrár þannig að hæstv. félmrh. gefist kostur á að tjá sig um þetta mál í meira mæli. Það er af hinu góða.
Ég ætla ekki að tala efnislega um málið og var eingöngu að biðja hljóðs um þingsköp til þess að koma þessu á framfæri þannig að hæstv. ráðherra fengi eðlilegan tíma til að fjalla um málið á Alþingi.
Atvinnuleysið og aðgerðir ríkisstjórnarinnar
85. fundur
Fimmtudaginn 17. desember 1992, kl. 16:10:12 (3729)
Halldór Ásgrímsson
(um þingsköp)
: