Fjáraukalög 1992

85. fundur
Fimmtudaginn 17. desember 1992, kl. 17:37:27 (3747)

     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Frú forseti. Ég hef margsinnis tekið fram í þessari umræðu að mér er fullkunnugt um þann vanda sem við er að etja í sjávarútvegi. Hann hefur löngum verið fyrir hendi og við leysum ekki vandamálið í eitt skipti fyrir öll. En vandinn nú er ekki fortíðarvandi, hann er nútíðarvandi og framtíðarvandi en það hefur ríkisstjórnin ekki skilið. Það er gallinn. Hún virðist ekki hafa skilið vanda líðandi stundar.