Fjáraukalög 1992

85. fundur
Fimmtudaginn 17. desember 1992, kl. 17:43:03 (3753)

     Stefán Guðmundsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Því miður geta íbúar Norðurl. v. ekki horft á Sýn. Ég þekki íbúa Norðurl. v. betur en hv. þm. og ég veit að þeir þekkja stöðu sjávarútvegsins og hvernig hún var þegar ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar fór frá og þeir vita í dag hvernig hún er nú. Hv. þm. sagði að sjávarútvegurinn ætti sér á Alþingi góða talsmenn. Ef svo er, hvernig má það þá vera að svo illa er komið fyrir þessari atvinnugrein? Hvernig má það hafa gerst? Hvar eru þessir málsvarar og hverjir eru þeir?