Stefán Guðmundsson
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Það er alveg rétt sem kom fram í ræðu hv. þm. Svavars Gestssonar að Framsfl. ber vissulega ábyrgð. Framsfl. hefur verið lengi við stjórn og Framsfl. þarf ekki að biðjast afsökunar á stjórnarþátttöku sinni. En Framsfl. hefur því miður aldrei haft það fylgi að geta verið einn við stjórnvölinn þannig að það hafa fleiri komið að.
Meginmálið er hins vegar það, eins og ég vék að hér áðan, að þegar Framsfl. fór frá völdum við síðustu kosningar og Sjálfstfl. og Alþfl. tóku við þá var kominn hagnaður í sjávarútveginn, þá undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar. Sjávarútvegurinn gerði meira en að borga að skuldum sínum, hv. þm. Karl Steinar Guðnason. Hann stóð einnig í skilum og borgaði laun starfsfólks síns sem hann getur því miður illa og kannski ekki gert í dag undir stjórn Alþfl. Hann borgaði milljarða. Hann gat borgað milljarða í sjóði sem átti að geyma til hagræðingar í greininni og til mögru áranna. En því miður höfðu þessir flokkar, Alþfl. og Sjálfstfl., ekki biðlund, þeir tóku þá og jusu úr þessum aumingjasjóðum sem þeir kölluðu svo.
Atvinnuleysi gengur líka yfir. Það er m.a. ástæða þessa og atvinnuleysi hefur aldrei verið meira en nú nema kannski hefur það verið svipað þegar þessir sömu flokkar fóru með völd, Sjálfstfl. og Alþfl. Það segir okkur býsna mikla sögu. Í bæði skiptin réðust þessir flokkar í sameiningu að velferðarkerfinu í landinu og launafólki. Þannig hafa þessir tveir flokkar ætíð brugðist við þegar þeir hafa náð saman. ( Forseti: Tíminn er búinn.) Þeir hafa gert meira. Þegar þeim stóð það til boða að gangast fyrir og hafa samvinnu um það nú fyrir stuttu síðan að viðhalda þeirri þjóðarsátt sem fyrrv. ríkisstjórn kom á þá gengu þeir út og enga þjóðarsátt.