Atvinnuleysistryggingar

86. fundur
Föstudaginn 18. desember 1992, kl. 17:58:54 (3795)

     Frsm. heilbr.- og trn. (Sigbjörn Gunnarsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 96/1990, með síðari breytingum.
    Heilbr.- og trn. hefur hefur fjallað um frv. og fengið um það umsagnir frá Alþýðusambandi Íslands, Landssambandi atvinnulausra, bæjarstjórn Vestmannaeyja, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Sambandi sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, bæjarstjórn Mosfellsbæjar, bæjarstjórn Keflavíkur og bæjarstjórn Seltjarnarness.
    Nefndin mælir með samþykkt frv.
    Undir þetta rita Sigbjörn Gunnarsson, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Guðmundur Hallvarðsson, Sólveig Pétursdóttir, Sigríður A. Þórðardóttir, Sigurður Þórólfsson, með fyrirvara, Finnur Ingólfsson, með fyrirvara, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, með fyrirvara og Svavar Gestsson, með fyrirvara.