Kvöldfundur

86. fundur
Föstudaginn 18. desember 1992, kl. 18:15:26 (3803)

     Geir H. Haarde :
    Virðulegur forseti. Ekki veit ég hvor okkar er biskupslegri ég eða hv. síðasti ræðumaður. ( ÓÞÞ: Það fer ekki á milli mála.) En honum láðist að geta þess hverjir sitja í varastjórn þingflokks framsóknarmanna þannig að unnt sé að ræða þetta mál við þá aðila. En ég tel að það hafi verið séð fyrir því að leita álits Framsfl. eins og sjálfsagt og eðlilegt er í máli sem þessu. ( Gripið fram í: Það er Ólafur Þ. sem er fullmektugur fyrir okkur hérna. )