Skattamál

86. fundur
Laugardaginn 19. desember 1992, kl. 01:36:09 (3872)

     Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vona það að síðustu orð hæstv. ráðherra séu meira en orðin tóm og það verði gengið í það með betri hætti að bæta stöðu þeirra greina innan ferðamannaþjónustunnar sem ekki bæta stöðu sína með þessum aðgerðum. Því það er alveg ljóst að við höfum afskaplega lítið við öflugan veitingarekstur að gera í landinu ef gisting og samgöngur búa við aðstæður sem verða þeim ekki til lífs.