Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það má nú segja að þeir geta gefið sem eiga. Það hefur komið fram að það er búið að gera samning við SÁÁ um að þeir reki áfram starfsemi í öllum þeim stofnunum sem þeir hafa starfrækt. Eftir að sá samningur var gerður, og áður líka, hefur komið fram hjá forráðamönnum SÁÁ að þeir séu reiðubúnir til að kaupa umræddar eignir og staðgreiða þær. Síðan kemur hv. þm. og leggur til að einkaaðila séu færðar að gjöf slíkar eignir sem hann er sjálfur búinn að óska eftir að fá keyptar og treystir sér til að staðgreiða. Þetta kalla ég, virðulegi forseti, ekki ábyrgð í ríkisfjármálum, en eins og ég sagði áðan, þeir gefa sem eiga.