Fjárlög 1993

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 16:03:34 (3994)

     Hjörleifur Guttormsson :
    Virðulegur forseti. Margt ber hér við á þingi. Nú óska fulltrúar stjórnarliðsins eftir því að umræður hefjist undir forminu atkvæðagreiðsla og hér kom fram alveg fáheyrður rökstuðningur fyrir því að segja nei við tillögu. Ég hef ekki séð öllu kynlegri kattarþvott hér úr ræðustóli og mætti verða öðrum til viðvörunar. Ég segi já við þessari góðu tillögu.