Fjárlög 1993

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 16:04:56 (3995)

     Jón Kristjánsson :
    Virðulegi forseti. Með þessari tillögu er reynt að koma í veg fyrir tilefnislausa lækkun framlaga til Íþróttasambands Íslands og Ungmennafélags Íslands og að framlög til þessara samtaka verði þau sömu í krónutölu og á síðasta ári. Það er allt sem farið er fram á. Ég segi já.