Fjárlög 1993

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 16:50:25 (4013)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Sú tillaga sem hér er verið að greiða atkvæði um ásamt með heimildargrein sem jafnframt verður greitt atkvæði um nú á þessum fundi um að fjmrh. sé heimilt að semja við stjórn Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri um rekstur Kristnesspítala og gera þá tilfærslu á fjármagni sem til þarf á að

tryggja að rekstur spítalans geti haldið áfram. Ég segi því já. (Gripið fram í.) --- Hæstv. forseti. Ég biðst afsökunar. Ég hafði misséð tillöguna. Eins og tillögur frá meiri hluta fjárln. liggja fyrir er rekstur Kristnesspítala tryggður á næsta ári sem er það sem að var stefnt. Þessi tillaga sem hér liggur fyrir er því óþörf og ég segi nei.