Fjárlög 1993

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 17:59:11 (4048)

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
    Virðulegi forseti. Ég vildi vekja athygli þingheims á því að í tillögu um breytingar á virðisaukaskatti er gert ráð fyrir jöfnunaraðgerðum sem vega mun þyngra en þær 80 millj. kr. sem voru í upphaflegri tillögu í fjárlagafrv. Þess vegna segi ég já.