Frsm. minni hluta félmn. (Kristinn H. Gunnarsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það var eitt sem ég vildi gjarnan leiðrétta í máli hæstv. fjmrh. sem mér fannst nokkur ónákvæmni. Hann ræddi um þetta frv. þannig að það leiddi af sér millibilsástand. Frv. er þannig úr garði gert að árið 1993 gildi sérstök ákvæði um aðstöðugjaldið. Síðan munu lögin verða óvirk þegar árinu 1993 er lokið og þá vakna aftur upp gömlu lögin þannig að aðstöðugjaldið heldur þá áfram að vera til í þeirri mynd eins og það er í dag. Ef ný löggjöf kemur kemur ekki til, þá kemur í raun og veru aðstöðugjaldið upp aftur í óbreyttu formi þannig að það er kannski dálítið hæpið að mínu viti að nefna þetta tímabundið í þeim skilningi.
Ég vildi gjarnan fá svör við því frá hæstv. fjmrh. hvort hann sé reiðubúinn að lýsa því yfir fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að ekki verði gengið á framlög ríkissjóðs til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á nýjan leik, fá skýra yfirlýsingu ráðherrans um að það verði látið staðar numið með þeim ákvæðum sem eru fyrir árið 1993 en eftir það verði jöfnunarsjóðurinn látinn í friði af hæstv. ríkisstjórn.