Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég held að það geti varla verið rétt skýring hjá hv. þingmanni að hann hafi vakið athygli á þessu af því að hann hafi haldið sig með því getað platað ríkisstjórnina til þess að geta valið óvinsælustu aðgerðina af þeim sem til boða stæðu. Hv. þm. spyr af hverju þetta var ekki gert og hv. þm. svarar að það sé vegna þess að það sé svo pólitískt erfitt. Hv. þm. tekur það að vísu fram að hann sé ekki að leggja þetta til, hann er bara að vekja athygli á þessu, en hann lýkur orðum sínum með því að segja: Ég er að benda á að það væri í rauninni miklu réttlátari aðgerð að láta þetta ganga yfir alla, barnafólk sem barnlausa.
Hv. þm. vekur athygli á þessu vegna þess að hv. þm. telur, að eigin sögn, að þetta sé miklu réttlátari aðgerð. Og kemur svo eftir á þegar hv. þm. verður var við það að á hann hefur verið hlustað og segja það að þarna hafi hv. þm. eingöngu verið að koma fram með hugmynd til þess að plata ríkisstjórnina til þess að velja verri kostinn af tveimur, kost sem hv. þm. lýsir sjálfur þannig að sé miklu réttlátari aðgerð heldur en sú aðgerð sem fólst í tillögum ríkisstjórnarinnar.
Ég vek bara athygli á því, virðulegi forseti, að í þessu efni hefur verið hlustað með fullri athygli á orð hv. þm. og sú leið sem hv. þm. taldi að væri miklu réttlátari.