Jóhannes Geir Sigurgeirsson
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Óvönduðum málflutningi mínum gagnvart ráðstöfunum í atvinnulífinu á þessu þingi vísa ég algerlega á bug og vísa eins og áður í ræður mína þar um. Hins vegar mun ég, hæstv. ráðherra, berjast á móti því óréttlæti sem hæstv. ríkisstjórn ætlar að framfylgja í aðgerðum sínum eins og hún útfærir þær.
Varðandi ferðamálin vil ég segja þetta, hæstv. samgrh.: Aðstöðugjaldið er almenn aðgerð sem kemur öllu atvinnulífi til góða og er ekki sérstök aðgerð gagnvart ferðamálum. Eins og formaður Vinnuveitendasambandsins orðaði það, það væri afspyrnuvitlaust að nota þessa niðurfellingu skatta til að rýma til fyrir öðrum sköttum. Það er síðan í takt við aðrar aðgerðir núv. hæstv. ríkisstjórnar að ætla sér að nota síðan það ár sem er fram undan þar til þessar aðgerðir koma fram af fullum þunga til þess að finna einhverjar mótaðgerðir. Þetta hefur verið gangur mála hjá núv. hæstv. ríkisstjórn. Það hefur ekki verið ár sem hefur verið um að ræða oft og tíðum, það hefur verið dagurinn sem þurfti til að vinda ofan af því sem gert

var í gær. Því miður eru vinnubrögðin þau og ekkert, sem við höfum fengið í efh.- og viðskn. í vetur, bendir til þess að núv. hæstv. ríkisstjórn sé að vinna að einhverju sem heitir heildstæð skattastefna. Þetta byggist allt á skyndiákvörðunum sem eru ákveðnar á næturfundum, breytt daginn eftir og í þriðja sinn aftur næsta dag. Því miður er gangur vinnubragðanna á þennan hátt.