Skattamál

89. fundur
Þriðjudaginn 22. desember 1992, kl. 18:01:46 (4217)

     Stefán Guðmundsson :
    Hæstv. forseti. Hæstv. fjmrh. sagði hér í dag og endurtók það nú áðan að þessar aðgerðir séu gerðar í þeirri vissu að ástandið í landinu muni batna. Því miður er það ekki svo og samkvæmt þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir frá Þjóðhagsstofnun er því spáð --- þveröfugt við fullyrðingar hæstv. fjmrh. hér rétt áðan --- því er spáð af Þjóðhagsstofnun sjálfri að atvinnuleysi muni því miður aukast á næsta ári. Þess vegna eru þær aðgerðir sem hér eru lagðar til fyrir fram dæmar til að mistakast og ég segi nei.