Frestun á fundum Alþingis

91. fundur
Þriðjudaginn 22. desember 1992, kl. 20:02:04 (4235)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Frú forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis skv. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan hljóðar svo:
    ,,Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 22. des. 1992, enda komi það saman á ný eigi síðar en 4. jan. 1993.``
    Tillagan skýrir sig sjálf og ég mæli með því að hún verði samþykkt.