Þingfrestun

91. fundur
Þriðjudaginn 22. desember 1992, kl. 20:13:48 (4244)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Frú forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 116. löggjafarþings, frá 22. des. 1992 og standi sú frestun til 4. jan. 1993, nema kveðja þurfi Alþingi saman samkvæmt síðari mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar.
Gjört í Reykjavík, 22. desember 1992.

Vigdís Finnbogadóttir.


_____________
Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

    Samkvæmt þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 116. löggjafarþings, er frestað.
    Ég leyfi mér að óska hv. alþm. og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.